|
Við vorum komin í borgina um klukkan hálf níu og það jafnast lítið á við það að sjá Manhattan í myrkri. Vildi óska að ég hefði getað tekið mynd af því. Hótelið var á besta stað, rétt hjá Times Square og við Andri enduðum á því að fá herbergi á þriðju efstu hæðinni eða 49. hæð. Þar sem ég er frekar lofthrædd þá átti ég í erfiðleikum með að standa nálægt glugganum. Í raun fæ ég ennþá dofa tilfinningu í fæturnar bara með því að hugsa um hæðina.... Kvöldið fór í gönguferð frá 44h street til 46h street þar sem við fundum mjög góðan brasilískan veitingastað þar sem við brögðuðum á brasilískum réttum og brasilískum drykkjum. Það er ekki hægt að fara til New York án þess að kynnast brasilískri menningu! ;) Daginn eftir var vaknað snemma og farið í búðir, hádegismatur var snæddur á risa ESPN veitingastað þar sem maður gat horft á uppáhlds íþróttina sína á einum af þeim tugum skjáa sem voru þar inni. Og til þess að fólk myndi alveg örugglega ekki missa af einni mínútu af því sem það kom að horfa á þarna, þá voru meira að segja skjáir inni á salernunum. Seinni hluta dagsins eyddum við á því að fara í hraðferð í gegnum American Museum of Natural History og í hjóltúr í gegnum Central Park, þar sem vinur okkar Igor frá Hvíta-Rússlandi leiddi okkur í gegnum helstu staðreyndir og sögulegar heimildir um garðinn. Flugið heim var klukkan hálf 9 á bandarískum tíma en við vorum þó ekki komi heim fyrr en klukka 6 um morgunin á hinum íslenska.Stutt ferð en þó frábær. Og ég væri meira en til í að fara aftur til þessarar ágætu borgar ef mér gæfist tilefni til. Þar til næst -Lilja Laufey |
| Lilja Laufey September 2, 2008 11:04 PM PDT Tinna, þetta eins dags ferðalag mitt hljómar þó ekki nærri því eins vel og þitt árs ferðalag til Taiwan. Ég öfunda þig eignlega.... Og Lísabet, þú verður bara að koma og vinna með mér úti í sólskininu öðru hvoru. Þá er sko gaman að vinna með mér. :) | ||
| Lísabet September 2, 2008 07:32 PM PDT Ég mæli með því að fara aftur og eyða smá meiri tíma í borginni. Það er alveg svakalega gaman í þessari borg. Mikið er gaman að við getum loksins unnið saman. Það þykir mér skemmtilegt. See u | ||
| Inga September 2, 2008 01:33 PM PDT Mmh æði! | ||
| Tinna September 2, 2008 03:04 AM PDT ohhhh vá hljómar ekkert smá vel:) væri alveg til í að fara í þennan hjólatúr:) knús á þig Lilja mín;) | ||
| Leave a Comment: |