Entry: Áfram Ísland!! Friday, August 22, 2008



Ég er komin heim í heiðardalinn. Fljótsdalurinn hefur verið yfirgefinn og ég hef fært mig yfir í Eyjafjörðinn... Allavega yfir helgina. Kom heim rétt tímanlega til að ná leiknum. Nú bíð ég bara spennt eftir sunnudeginum. Það verður vaknað klukkan hálf 8 til að horfa á úrslitaleikinn, að sjálfsögðu! Á sunnudagskvöldið mun ég svo fljúga suður. Þar mun ég eiga vikufrí og vonandi fer hluti af því í að skella sér í dagsferð til New York. Svo er það bara vinna 1. sept. :)

Í gær var síðasti dagurinn okkar Skriðuklausturs fornleifafræðinganna. Við fögnuðum vinnulokum með því að skella okkur upp í Laugarfell þar sem markmiðið var sett á bað í heitri laug þar uppfrá. Það vildi þó svo óheppilega til að hestafólk sem var þar á ferð var búið að tæma laugina. Við létum okkur því nægja að labba upp að litlum, fallegum fossi þar nálægt og sátum þar og drukkum bjór og spiluðum og sungum. Tveir úr hópnum skelltu sér í bað í ánni og ótrúlegt en satt þá var ég ekki ein af þeim. :) Um kvöldið var svo tekinn rúntur um Fljótsdalinn og fólkið kvatt með smá samkomu á Hvammi. Og þó það sé leiðinlegt að kveðja Fljótsdalinn þá er samt fínt að komast heim.

Jæja, ég ætla að fara að horfa á 4 x 400 m boðklaupið.

Þar til næst
-Lilja Laufey



   2 comments

Lilja Laufey
August 24, 2008   12:22 AM PDT
 
Já, Fenderhaus var frábær staður. Og frábær hópur sem bjó þar. :)

Dagsferðin til New York verður farin vegna þess að Andri er flugþjónn og fær að drösla mér með þegar hann flýgur þangað eftir nokkra daga.

Hafðu það svo sem allra best í Taiwan, Tinna mín. :)
Tinna (sölden)
August 23, 2008   06:04 AM PDT
 
Hæhæ Lilja mín:)

ertu að fara að skella þér til New York í einn dag...hvernig er það gert?? hehe:)

knús á þig:)

Kveðja frá Taiwan

Tinna

p.s vantar sko alveg Fender og allt liðið sem var inn í því hingað...:)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments