|
Nýjustu fréttir eru þær að ég er komin með vinnu í vetur og það við fornleifafræði. Það er að byrja uppgröftur í Reykjavík sem er kallaður Alþingisreiturinn og ég verð bæði í vinnu við að grafa þar og að flokka, pakka og skrá þá gripi sem finnast þar. Mér líst bara vel á þetta, sérstaklega vegna þess að launin eru jafn góð og hér á Skriðuklaustri. Frétt númer tvö er að ég er að prjóna mér lopapeysu sem á að vera svört, fjólublá, grænblá, appelsínugul, rauð og hvít. Hún á helst að vera tilbúin fyrir Borgarfjörð Eystri, en hann er eftir tvær vikur. Því verð ég að fara að próna núna.... Þar til næst -Lilja Laufey |
| Lísabet July 17, 2008 07:06 PM PDT Til hamingju með atvinnuna í vetur, gangi þér vel. | ||
| Tinna (Sölden) July 17, 2008 12:44 PM PDT Til hamingju með vinnuna...;) | ||
| Leave a Comment: |