Entry: Finally - Loksins Wednesday, July 02, 2008



Það er hátíð á Hvammi í Fljótsdal! Við erum loksins komin með netið heim í hús. Núna situr hver inni í sínu herbergi og "netast" í einrúmi eftir tæpa mánaðar fjarveru frá þessum tímaþjófi sem netið getur verið.

Mánuður í uppgreftri fyrir austan... Margt skemmtilegt hefur gerst eins og: Póker partý, GuitarHero partý, Kárahnjúkar, rigning, vindur, Meat Loaf, bjór, EM, Seyðisfjörður, Bloodgroup og 1 árs afmæli.

Um helgina ákvað ég að vera í stuði í orðsins fyllstu merkingu og fékk að upplifa að vera "stuðuð" af svokölluðum "tazer." Nei, lögreglan réðist ekki á mig heldur gerði ég þetta af fúsum og frjálsum vilja. Ég mæli hinsvegar ekki með því.... Það var eins og það væri verið að skera bita úr lærinu á mér. Langt fram á kvöldið var ég með óþægilegan doða og stig í lærinu.

Næstu helgi er stefnt á Humarhátíð á Höfn, Skaftafell og Jökulsárlón. Einnig var ég búin að lofa að vera drukkin alla ferðina. Veit ekki hvernig það á eftir að ganga.

Þar til næst
-Lilja Laufey

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments