|
Alla vikuna þurfti ég að hafa íbúðina ólæsta meðan ég var í vinnunni, því að Andri fór alltaf á undan mér og ekki tímdi hann að lána mér sína, því þá yrði hann læstur úti. Það var svo á fimmtudagskvöldið sem ég fór út með ruslið og hvað haldið þið að ég hafi séð í hurðinni á ruslageymslunni? Jebb, það voru lyklarnir mínir. Búnir að hanga þarna í hurðinni í fimm daga og vegna þess að þeir voru ekki merktir (því að sjálfsögðu má ekki merkja lykla) þá gat enginn skilað þeim til mín. En ég var fegin að fá þá til baka. :) Þar til næst -Lilja Laufey |
| Elmar June 5, 2008 05:43 PM PDT Já ég týndi lyklunum mínum fyrir rúmu ári síðan og er bara að bíða eftir að þeir komi aftur í leitirnar. Hmm... kannski að þeir hangi á hurðinni í þvottahúsinu? | ||
| Lísabet Guðmundsdóttir June 4, 2008 08:31 PM PDT það er nú gott að lyklarnir komust í leitirnar. :) Gangi þér vel að flytja. | ||
| Leave a Comment: |