Thursday, May 29, 2008
Sat úti í grasinu áðan þegar jarðskjálftinn kom. Hef aldrei upplifað neitt svona áður, hélt í alvöru að jörðin væri að opnast undir mér. Mæli hiklaust með því að leggja höndina á jörðina í næsta jarðskjálfta. Það er skrítin tilfinning, maður finnur hvernig kletturinn undir manni hreyfist til hliðar. :)
Annars erum við Andri að fá nýju íbúðina á morgun. Held samt að við förum rólega í það að flytja. Sérstaklega vegna þess að við höfum þá gömlu til 21. júní og vegna þess að það á eftir að taka langan tíma að fá net og sjónvarp þangað. Endalaust vesen!
Rúm vika í austurferð.
Þar til næst
-Lilja Laufey
p.s. Fyrstu fimm fréttirnar á Stöð 2 snérust um jarskjálftann. Fær mann til að hugsa... Hvað átti upprunanlega að vera í fréttum og var það svo ómerkilegt að það mátti alveg eins sleppa því?
Posted at 08:40 pm by lugure
Permalink
Thursday, May 22, 2008
Allar einkunir komnar í hús, tvær 8,5 og ein 9 og ég verð bara að vera
nokkuð sátt með það. Núna er ég að vinna í leikskólanum Sólgarði til
þess að hafa eitthvað að gera þangað til ég fer austur 9. júní.
Horfði
á leikinn í meistaradeildinni í gær, það var erfitt að vera á bar með
nánast bara Manchester aðdáendum. Sérstaklega af því að þeir unnu svo á
endanum... Fúlt marr. En þetta var allavega frábær leikur og nú hlakkar
maður bara til að EM byrji. Fyrsti leikurinn 7. júní.
Í kvöld er
það svo grill-júró og á laugardag afmælis-júró. :) Og þó að ég voni að
sjálfsögðu að Euro parið okkar komist áfram, þá ætla ég ekki að gera
mér neinar vonir.
Þar til næst
-Lilja Laufey
Posted at 06:48 pm by lugure
Permalink
Tuesday, May 13, 2008
Þá er því loksins lokið. :) Ég skilaði ritgerðinni minni á föstudaginn og átti afslappaða hvítasunnuhelgi. Núna á föstudaginn ætlum við systur svo að halda smá útskriftargrill í tilefni þess að við erum báðar að fara að útskrifast 14. júní. Jey!
Fór í bíó um daginn (2 fyrir 1, datt ekki í hug að borga 2100 kall fyrir tvo) á myndina Iron Man og mæli tvímælanlaust með henni. Frábær mynd, sú besta sem ég hef séð lengi.
Þegar ég blogga þá dettur mér alltaf í hug, einhverra hluta vegna, te. Þess vegna er ég að hugsa um að hafa þetta bara stutt og fara að fá mér einn bolla á meðan ég reyni að klára púslið sem ég keypti í Kolaportinu um helgina.
Þar til næst
-Lilja Laufey
p.s Körfubolti getur verið skemmtilegur...
Posted at 04:33 pm by lugure
Permalink
Tuesday, April 29, 2008
Fyrsta og síðasta prófið á morgun og ég held að ég sé búin að læra yfir mig. Ég nenni ómögulega að leggja fleiri ártöl úr forsögunni á minnið...Og hvað þá atburði! Mest langar mig að skríða upp í rúm og fara að lesa hryllingssöguna mín The Ruins sem ég var að byrja á, en Andri er í burtu og ég þori ekki að taka áhættuna á því að ég verði nett hrædd (og ein heima).
Og talandi um Andra... Í gær neyddumst við, í fyrsta skipti í okkar sambúð, til þess að panta okkur pizzu af því að maturinn sem við vorum að elda eyðilagðist. Já, Andri var að elda bjúgu og karteflustöppu. Einhverra hluta vegna var hann eitthvað annarshugar og setti salt út í karteflustöppuna í stað sykurs. Og ég get sagt ykkur að ég hef aldrei smakkað eins vonda karteflustöppu á ævinni. Við reyndum að bjarga henni og heltum líklega hálfu kílói af sykri út en hún vildi ekki bjargast. Pizzan var samt ágæt.

Skil á ritgerð í byrjun næstu viku.
Þar til næst
-Lilja Laufey
Posted at 11:13 pm by lugure
Permalink
Wednesday, March 26, 2008
Frábær páskavika að baki.
Þriðjudagur: Lært (ekkert rosalega gaman), um kvöldið skruppum við þó í sund.
Miðvikudagur: Lært meira, skroppið í heimsókn til Andra og um kvöldið var farið keilu og á sveitaball. Fínasta skemmtun
Fimmtudagur: Fengum við Sunnutraðarfólkið í heimsókn og það var sungið og spilað á gítar.
Föstudagur: Fjallið í fimm tíma, matarboð um kvöldið til grunnskóla og menntaskólavina.
Laugardagur: Badminton og ég fékk að tapa fyrir ungum Íslandsmeistara án þess að skora stig. Svo var skroppið í sund á eftir. Um kvöldið fórum við Andri, Sara syss og Þórir á Ljótu hálvitana á Græna hattinum.
Sunnudagur: Útivist, þar sem farið var með sleða, snjóþotur, bretti og snjósleða frameftir í Holtahólfið og rennt sér. Svo voru borðaðar samlokur og drukkið kakó.
Mánudagur: Keyrt heim og borðað afganga af páskaeggi.
Núna er það bókhlaðan sem er málið.
Þar til næst
-Lilja Laufey
Posted at 06:12 pm by lugure
Permalink
Thursday, March 20, 2008
Sit í stofunni heima og horfi á Stundina okkar... Er eiginlega að bíða eftir því að Scrubs byrji. Kannksi ætti ég bara að vera að læra. Er komin með slatta af blaðsíðum í BA-ritgerðina (held að þær séu orðnar 39!). Þarf samt einnig að læra smá í forvörslu ritgerðinni minni.
Úti er alltaf að snjóa, sem er fínt því ég er að hugsa um að plata systur mínar með mér upp í fjall á morgun. Jey!
Æi, ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að blogga! Það er páskafrí og páskaeggið frá Kólus verður borðað eftir tvo daga.
Þar til næst
-Lilja Laufey
Posted at 07:01 pm by lugure
Permalink
Sunday, March 09, 2008
Fór á Súperstar í gær og skemmti mér bara mjög vel. Ég var ekkert sérstaklega ánægð með nýju þýðinguna, en reyndi samt að láta það ekki fara í taugarnar á mér. Enda er óþarfi að láta það eyðileggja skemmtunina. Margir höfðu sitt að segja um sýninguna sem var misgott, en persónulega var ég alveg að fíla hana í botn. Þarna var ekki um að ræða glæsilega leiksigra, enda bjóst enginn við því, með nánast bara söngvara í hlutverkum. Þess vegna er óþarfi að ráðast eitthvað á leikinn, því það er allvega betra að fólkið kunni að syngja.
Já þetta er það sem ég hef að segja um sýninguna. Mér fannst hún flott, raunveruleg og hengingaratriðið var mergjað. ;)
Svo vil ég bara minna á Kólus páskaeggin sem ég er að selja, nú fer hver að verða síðastur!
Þar til næst
-Lilja Laufey
Posted at 12:38 pm by lugure
Permalink
Saturday, March 01, 2008
Páskaegg til sölu!!
Nú fer að líða að páskum og þess vegna mun ég vera að selja hin girnilegu páskaegg frá Kólus á næstu dögum. Eggin er um 900 gr og kosta 2200 kr og eru að sjálfsögðu mjög góð. :)
Þeim sem langar að nýta sér þetta glæsilega tilboð, endilega pantið hjá mér sem fyrst, með því að kommenta, senda mér e-mail á lld1@hi.is eða hringja í mig í númer 8660342.
Ég bíst við að ég muni svo keyra þau til ykkar þegar ég fæ þau í hendurnar. Ekki verra að fá þau heimsend!!!
Þar til næst
-Lilja Laufey
Posted at 05:12 pm by lugure
Permalink
Friday, February 29, 2008
Komin helgi enn eina ferðina, tíminn líður það hratt að mér finnst ég þurfa að vera að læra nánast alltaf. Ætla þess vegna ekkert að djamma þessa helgi, heldur fara bara upp á bókhlöðu í staðinn eldsnemma.
Það er reyndar vísindaferð á eftir, en ég ætla bara að fara keyrandi. Eyði kvöldinu líklega í það að horfa á Gettu betur. :)
Er að lesa Dexter í dimmum draumi. Fyrstu kaflarnir eru skuggalega líkir þáttunum. Reyndar var Andri búinn að segja mér að hún endar ekki eins og þættirnir, þannig að ég bíð bara spennt eftir endanum.
Staðreynd dagsins:
Sorg er ekki alltaf fylgifiskur dauðans. Á Balí segir fólk brosandi og hlægjandi frá andláti ættingja sinna vegna þess að þar er talið að sorg og neikvæðar tilfinningar valdi sjúkleika.
Þar til næst
-Lilja Laufey
Posted at 02:13 pm by lugure
Permalink
Tuesday, February 26, 2008
Nesti vs. Reiður bókasafnsfræðingur
Sit á Þjóðarbókhlöðunni, er búin að vera að hugsa um það í hálftíma að reyna að borða nestið mitt. Og þar sem ég nenni ekki að fara að niður og taka með mér tölvuna, þá hef ég verið að reyna að safna í mig kjark til þess að borða það bara hér. En þá brýst fram í hugann á mér mynd af bókasafnsfræðingi sem rífur af mér samlokuna og safann og heldir því í ruslið með gífurlegan reiðisvip á andlitinu. Þannig að ég þori því ekki....
Því er ég að hugsa um að fara bara heim, enda búin að læra hellig. Kláraði ritgerð, sendi póst til fólks um hvort ég mætti kíkja á gögnin þeirra og lék mér á netinu.
Var að klára skáldsöguna byggða á heimildum: Reisubók Guðríðar Símonardóttur. Var nokkuð ánægð með hana, þó að ég hafi verið smá ósátt með að fá ekki að vita allt um alla sem komust heim, hvort einhver eiginmaður/kona hafi beðið eftir sínum heittelskaða í 10 ár og hvernig viðbrögðin voru þegar fólkið kom heim. Var Guðríður kannski sú eina sem kom aftur til íslands? Urðu hinir allir eftir í Danmörku? Ef einhver þekkir söguna, þá endilega svarið mér.
Staðreynd:
Ég er svöng og ætla því heim...
Þar til næst
-Lilja Laufey
Posted at 02:29 pm by lugure
Permalink