Skrapp í dagsferð til New York á fimmtudaginn. Fékk að fara með einkaflugfreyjunni minni þar sem hann var að fljúga þangað með Iceland Air. Ferðin út var sú besta sem ég hef upplifað í flugvél. Það var ekki bara út af þeim þægindum sem fylgja því að þekkja starfsfólkið og fá því að sitja á Saga Class. Helsta ástæðan var sú að ég fékk að sitja frammi í flugstjóraklefanum við lendingu.
Við vorum komin í borgina um klukkan hálf níu og það jafnast lítið á við það að sjá Manhattan í myrkri. Vildi óska að ég hefði getað tekið mynd af því. Hótelið var á besta stað, rétt hjá Times Square og við Andri enduðum á því að fá herbergi á þriðju efstu hæðinni eða 49. hæð. Þar sem ég er frekar lofthrædd þá átti ég í erfiðleikum með að standa nálægt glugganum. Í raun fæ ég ennþá dofa tilfinningu í fæturnar bara með því að hugsa um hæðina....
Kvöldið fór í gönguferð frá 44h street til 46h street þar sem við fundum mjög góðan brasilískan veitingastað þar sem við brögðuðum á brasilískum réttum og brasilískum drykkjum. Það er ekki hægt að fara til New York án þess að kynnast brasilískri menningu! ;)
Daginn eftir var vaknað snemma og farið í búðir, hádegismatur var snæddur á risa ESPN veitingastað þar sem maður gat horft á uppáhlds íþróttina sína á einum af þeim tugum skjáa sem voru þar inni. Og til þess að fólk myndi alveg örugglega ekki missa af einni mínútu af því sem það kom að horfa á þarna, þá voru meira að segja skjáir inni á salernunum.
Seinni hluta dagsins eyddum við á því að fara í hraðferð í gegnum American Museum of Natural History og í hjóltúr í gegnum Central Park, þar sem vinur okkar Igor frá Hvíta-Rússlandi leiddi okkur í gegnum helstu staðreyndir og sögulegar heimildir um garðinn.
Flugið heim var klukkan hálf 9 á bandarískum tíma en við vorum þó ekki komi heim fyrr en klukka 6 um morgunin á hinum íslenska.Stutt ferð en þó frábær. Og ég væri meira en til í að fara aftur til þessarar ágætu borgar ef mér gæfist tilefni til.
Þar til næst
-Lilja Laufey