Ég er komin heim í heiðardalinn. Fljótsdalurinn hefur verið yfirgefinn og ég hef fært mig yfir í Eyjafjörðinn... Allavega yfir helgina. Kom heim rétt tímanlega til að ná leiknum. Nú bíð ég bara spennt eftir sunnudeginum. Það verður vaknað klukkan hálf 8 til að horfa á úrslitaleikinn, að sjálfsögðu! Á sunnudagskvöldið mun ég svo fljúga suður. Þar mun ég eiga vikufrí og vonandi fer hluti af því í að skella sér í dagsferð til New York. Svo er það bara vinna 1. sept. :)
Í gær var síðasti dagurinn okkar Skriðuklausturs fornleifafræðinganna. Við fögnuðum vinnulokum með því að skella okkur upp í Laugarfell þar sem markmiðið var sett á bað í heitri laug þar uppfrá. Það vildi þó svo óheppilega til að hestafólk sem var þar á ferð var búið að tæma laugina. Við létum okkur því nægja að labba upp að litlum, fallegum fossi þar nálægt og sátum þar og drukkum bjór og spiluðum og sungum. Tveir úr hópnum skelltu sér í bað í ánni og ótrúlegt en satt þá var ég ekki ein af þeim. :) Um kvöldið var svo tekinn rúntur um Fljótsdalinn og fólkið kvatt með smá samkomu á Hvammi. Og þó það sé leiðinlegt að kveðja Fljótsdalinn þá er samt fínt að komast heim.
Jæja, ég ætla að fara að horfa á 4 x 400 m boðklaupið.
Þar til næst
-Lilja Laufey