Monday, August 18, 2008
Flugdrekahlauparinn

Var að klára bókina Flugdrekahlauparinn eftir Khaled Hosseini og veit eiginlega ekki hvað ég á að segja nema hvað að þetta var frábær bók, þrátt fyrir að hún sé eiginlega sorgleg út í gegn. Loksins þegar maður heldur að það sé að rætast úr öllu, þá gerist einn voða atburðurinn enn. Nú leggst ég yfir Þúsund bjartar sólir næstu helgi. :)

Annars er dvöl minni fyrir austan nánast lokið þar sem síðasta vinnuvikan byrjaði í dag. Síðustu vikur hef ég verið á fullu í að grafa upp grafir. Ég er á minni þriðju núna og finnst bara það mjög gaman þó að það votti fyrir smá einhverfu eftir að eyða deginum einn ofan í gröf. Venjulega hef ég nefnilega "skurðarfélaga" við hlið mér sem ég get spjallað við...

Farið verður frá Fljótsalnum á föstudaginn en áður en ég kem alfarið suður ætla ég að eyða helginni í faðmi fjölskyldunnar í Vallartröðinni. Svo kem ég heim á sunnudagskvöld og hver veit hvað bíður mín þá?? Vonandi eitthvað skemmtilegt.

Þar til næst
-Lilja Laufey



Posted at 08:39 pm by lugure

Lilja Laufey
August 22, 2008   01:58 AM PDT
 
Jú jú. Maður segir eitt og annað við einstaklingana sem maður er að grafa upp. :) Og hlakka sömuleiðis til að hitta þig. :)
Auður
August 20, 2008   09:59 PM PDT
 
Hlakka til að sjá þig:) Getur þú ekki bara spjallað við félagana sem þú ert að grafa upp? Ávallt góður kostur hef ég heyrt.
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments







Previous Entry Home Next Entry