Tuesday, June 03, 2008
Á laugardaginn fyrir rúmri viku...

...þá fór ég í bæinn og skemmti mér bara nokkuð vel, þrátt fyrir stutta viðdvöl. Daginn eftir gat ég ómögulega fundið lyklana mína og á mánudeginum var það orðið ljóst; lyklarnir voru ekki í húsinu. Mér fannst þetta að sjálfsögðu voða sorglegt og datt í hug að ég hefði kannski misst þá í gólfið á þessum eina stað sem fór á niðri í bæ. Ég minntist þess þó ekki að hafa farið neitt í töskuna mína en ákvað þó að hringja og athuga hvort þeir hefðu fundist. En svo var víst ekki.

Alla vikuna þurfti ég að hafa íbúðina ólæsta meðan ég var í vinnunni, því að Andri fór alltaf á undan mér og ekki tímdi hann að lána mér sína, því þá yrði hann læstur úti. Það var svo á fimmtudagskvöldið sem ég fór út með ruslið og hvað haldið þið að ég hafi séð í hurðinni á ruslageymslunni? Jebb, það voru lyklarnir mínir. Búnir að hanga þarna í hurðinni í fimm daga og vegna þess að þeir voru ekki merktir (því að sjálfsögðu má ekki merkja lykla) þá gat enginn skilað þeim til mín. En ég var fegin að fá þá til baka. :)

Þar til næst
-Lilja Laufey

Posted at 05:36 pm by lugure

Elmar
June 5, 2008   05:43 PM PDT
 
Já ég týndi lyklunum mínum fyrir rúmu ári síðan og er bara að bíða eftir að þeir komi aftur í leitirnar. Hmm... kannski að þeir hangi á hurðinni í þvottahúsinu?
Lísabet Guðmundsdóttir
June 4, 2008   08:31 PM PDT
 
það er nú gott að lyklarnir komust í leitirnar. :)
Gangi þér vel að flytja.
 

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments







Previous Entry Home Next Entry