Saturday, September 13, 2008
Rútína

Maður er allur að falla inn í rútínu vetrarins. Hjóla í vinnuna, vinna í 9 tíma, hjóla heim, borða, sofa. Þessi skemmtilega rútína veldur því einnig að ég hef ekkert að blogga um...

Andri á frímiða til útlanda með Iceland Air og þá er bara spurning hvert á að fara og hvenær. Mig langar smá til Danmerkur af því að ég hef aldrei farið þangað. En svo eru margir aðrir staðir sem ég hef aldrei farið til heldur. Og talandi um Andra, kíkið á síðuna hans þar sem hann er aftur byrjaður að deila hugsunum sínum með hinum fjölmörgu notendum netsins.

Þar til næst
-Lilja Laufey



Posted at 11:26 am by lugure
Make a comment  




Thursday, September 04, 2008
Alþingisreiturinn

1. septenber byrjaði ég að vinna við uppgröft í miðbænum og er sá uppgröftur kenndur við Alþingi. Enn sem komið er gengur bara vel í vinnunni þó að það sé erfitt að venjast því að vera alltaf að vinna frá 8-5. Þá man maður hvað það var þægilegt að vera í skóla og vera jafnvel bara upptekinn í tvo tíma á dag... :) Endilega komið og kíkið á mig ef þið eigið leið hjá.

Um helgina ætlum við Elva systir og frænkur okkar þrjár að skella okkur í bústað í Borgarfirðinum þar sem verður borðaður góður matur, spilað og ef til vill fengið sér einn öllara eða tvo. Það verður frábært að slappa af eftir erfiða fyrstu vinnuviku.

Þar til næst
-Lilja Laufey

Posted at 09:41 pm by lugure
Make a comment  




Monday, September 01, 2008
New York

Skrapp í dagsferð til New York á fimmtudaginn. Fékk að fara með einkaflugfreyjunni minni þar sem hann var að fljúga þangað með Iceland Air. Ferðin út var sú besta sem ég hef upplifað í flugvél. Það  var ekki bara út af þeim þægindum sem fylgja því að þekkja starfsfólkið og fá því að sitja á Saga Class. Helsta ástæðan var sú að ég fékk að sitja frammi í flugstjóraklefanum við lendingu.

Við vorum komin í borgina um klukkan hálf níu og það jafnast lítið á við það að sjá Manhattan í myrkri. Vildi óska að ég hefði getað tekið mynd af því. Hótelið var á besta stað, rétt hjá Times Square og við Andri enduðum á því að fá herbergi á þriðju efstu hæðinni eða 49. hæð. Þar sem ég er frekar lofthrædd þá átti ég í erfiðleikum með að standa nálægt glugganum. Í raun fæ ég ennþá dofa tilfinningu í fæturnar bara með því að hugsa um hæðina....

Kvöldið fór í gönguferð frá 44h street til 46h street þar sem við fundum mjög góðan brasilískan veitingastað þar sem við brögðuðum á brasilískum réttum og brasilískum drykkjum. Það er ekki hægt að fara til New York án þess að kynnast brasilískri menningu! ;)

Daginn eftir var vaknað snemma og farið í búðir, hádegismatur var snæddur á risa ESPN veitingastað þar sem maður gat horft á uppáhlds íþróttina sína á einum af þeim tugum skjáa sem voru þar inni. Og til þess að fólk myndi alveg örugglega ekki missa af einni mínútu af því sem það kom að horfa á þarna, þá voru meira að segja skjáir inni á salernunum.

Seinni hluta dagsins eyddum við á því að fara í hraðferð í gegnum American Museum of Natural History og í hjóltúr í gegnum Central Park, þar sem vinur okkar Igor frá Hvíta-Rússlandi leiddi okkur í gegnum helstu staðreyndir og sögulegar heimildir um garðinn.

Flugið heim var klukkan hálf 9 á bandarískum tíma en við vorum þó ekki komi heim fyrr en klukka 6 um morgunin á hinum íslenska.Stutt ferð en þó frábær. Og ég væri meira en til í að fara aftur til þessarar ágætu borgar ef mér gæfist tilefni til.

Þar til næst
-Lilja Laufey



Posted at 12:00 am by lugure
Comments (4)  




Friday, August 22, 2008
Áfram Ísland!!

Ég er komin heim í heiðardalinn. Fljótsdalurinn hefur verið yfirgefinn og ég hef fært mig yfir í Eyjafjörðinn... Allavega yfir helgina. Kom heim rétt tímanlega til að ná leiknum. Nú bíð ég bara spennt eftir sunnudeginum. Það verður vaknað klukkan hálf 8 til að horfa á úrslitaleikinn, að sjálfsögðu! Á sunnudagskvöldið mun ég svo fljúga suður. Þar mun ég eiga vikufrí og vonandi fer hluti af því í að skella sér í dagsferð til New York. Svo er það bara vinna 1. sept. :)

Í gær var síðasti dagurinn okkar Skriðuklausturs fornleifafræðinganna. Við fögnuðum vinnulokum með því að skella okkur upp í Laugarfell þar sem markmiðið var sett á bað í heitri laug þar uppfrá. Það vildi þó svo óheppilega til að hestafólk sem var þar á ferð var búið að tæma laugina. Við létum okkur því nægja að labba upp að litlum, fallegum fossi þar nálægt og sátum þar og drukkum bjór og spiluðum og sungum. Tveir úr hópnum skelltu sér í bað í ánni og ótrúlegt en satt þá var ég ekki ein af þeim. :) Um kvöldið var svo tekinn rúntur um Fljótsdalinn og fólkið kvatt með smá samkomu á Hvammi. Og þó það sé leiðinlegt að kveðja Fljótsdalinn þá er samt fínt að komast heim.

Jæja, ég ætla að fara að horfa á 4 x 400 m boðklaupið.

Þar til næst
-Lilja Laufey




Posted at 03:15 pm by lugure
Comments (2)  




Monday, August 18, 2008
Flugdrekahlauparinn

Var að klára bókina Flugdrekahlauparinn eftir Khaled Hosseini og veit eiginlega ekki hvað ég á að segja nema hvað að þetta var frábær bók, þrátt fyrir að hún sé eiginlega sorgleg út í gegn. Loksins þegar maður heldur að það sé að rætast úr öllu, þá gerist einn voða atburðurinn enn. Nú leggst ég yfir Þúsund bjartar sólir næstu helgi. :)

Annars er dvöl minni fyrir austan nánast lokið þar sem síðasta vinnuvikan byrjaði í dag. Síðustu vikur hef ég verið á fullu í að grafa upp grafir. Ég er á minni þriðju núna og finnst bara það mjög gaman þó að það votti fyrir smá einhverfu eftir að eyða deginum einn ofan í gröf. Venjulega hef ég nefnilega "skurðarfélaga" við hlið mér sem ég get spjallað við...

Farið verður frá Fljótsalnum á föstudaginn en áður en ég kem alfarið suður ætla ég að eyða helginni í faðmi fjölskyldunnar í Vallartröðinni. Svo kem ég heim á sunnudagskvöld og hver veit hvað bíður mín þá?? Vonandi eitthvað skemmtilegt.

Þar til næst
-Lilja Laufey



Posted at 08:39 pm by lugure
Comments (2)  




Friday, August 08, 2008
Verslunnarmannarhelgin afstaðin...

...sem þýðir að sumarið fer að verða búið. Helginni eyddi ég fyrir sunnan. Hitti Ger og Aus á föstudagskveldinu, þar var borðaður geggjaður matur, spjallað og skroppið á Organ. Sunnudagskveldið fór í hið árlega "verslunnarmannahelgar partý fyrir fornleifafræðinga sem vinna á Skriðuklaustri".

Svekkelsi helgarinnar var að missa að Jeff who? tónleikunum á laugardagskvöldið, en ég var svo þreytt að ég nennti ekki. Sagan segir að þetta hafi verið bestu tónleikarnir þeirra í mjög langan tíma. Eins og ég segi: Svekkelsi!

Það er aftur að koma helgi. Planið er að skreppa í 18 ára afmæli annað kvöld en vera samt hress á laugardaginn til að geta farið í fjallgöngu á Seyðisfirði til að skoða stað þar sem fjallkonan svokallaða fannst fyrr nokkrum árum.

Annað í fréttum er að Ragna Ingólfsdóttir verður fyrst Íslendinga til að Ólympíuleikast í ár, klukkan 1:20 á aðfaranótt laugardags. Ef ég ætla að sjá það þá verð ég líklega að koma snemma heim úr afmælinu. Ég bíst allavega ekki við því að ég verði vinsæl ef ég fer að kveikja á sjónvarpinu í miðju fylleríi og biðja fólk að hafa lærra af því að ég vilji sjá tvær fáklæddar og sveittar konur slá á milli sín bolta... Eða hvað? Big Smile

Þar til næst
-Lilja Laufey

Posted at 12:18 am by lugure
Comments (3)  




Tuesday, July 15, 2008
Vinna í vetur

Fór til Mývatnssveitar um helgina. Þar var farið á skemmtilega tónleika, kastað nærbuxum upp á svið og farið í nærfatasund í gjótunum. Stefnan verður tekin á Seyðisfjörð næstu helgi á listahátíðina Lunga.

Nýjustu fréttir eru þær að ég er komin með vinnu í vetur og það við fornleifafræði. Það er að byrja uppgröftur í Reykjavík sem er kallaður Alþingisreiturinn og ég verð bæði í vinnu við að grafa þar og að flokka, pakka og skrá þá gripi sem finnast þar. Mér líst bara vel á þetta, sérstaklega vegna þess að launin eru jafn góð og hér á Skriðuklaustri.

Frétt númer tvö er að ég er að prjóna mér lopapeysu sem á að vera svört, fjólublá, grænblá, appelsínugul, rauð og hvít. Hún á helst að vera tilbúin fyrir Borgarfjörð Eystri, en hann er eftir tvær vikur. Því verð ég að fara að próna núna....

Þar til næst
-Lilja Laufey

Posted at 07:39 pm by lugure
Comments (2)  




Wednesday, July 02, 2008
Finally - Loksins

Það er hátíð á Hvammi í Fljótsdal! Við erum loksins komin með netið heim í hús. Núna situr hver inni í sínu herbergi og "netast" í einrúmi eftir tæpa mánaðar fjarveru frá þessum tímaþjófi sem netið getur verið.

Mánuður í uppgreftri fyrir austan... Margt skemmtilegt hefur gerst eins og: Póker partý, GuitarHero partý, Kárahnjúkar, rigning, vindur, Meat Loaf, bjór, EM, Seyðisfjörður, Bloodgroup og 1 árs afmæli.

Um helgina ákvað ég að vera í stuði í orðsins fyllstu merkingu og fékk að upplifa að vera "stuðuð" af svokölluðum "tazer." Nei, lögreglan réðist ekki á mig heldur gerði ég þetta af fúsum og frjálsum vilja. Ég mæli hinsvegar ekki með því.... Það var eins og það væri verið að skera bita úr lærinu á mér. Langt fram á kvöldið var ég með óþægilegan doða og stig í lærinu.

Næstu helgi er stefnt á Humarhátíð á Höfn, Skaftafell og Jökulsárlón. Einnig var ég búin að lofa að vera drukkin alla ferðina. Veit ekki hvernig það á eftir að ganga.

Þar til næst
-Lilja Laufey

Posted at 08:40 pm by lugure
Make a comment  




Saturday, June 07, 2008
Farin austur!

Á morgun fer ég austur á Klaustur. Er farin að hlakka nokkuð til þó að ég eigi að sjálfsögðu eftir að sakna Andra klandra...  (mússí mú).

Nú erum við loksins búin að koma okkur almennilega fyrir í nýju íbúðinni í Hátúni. Fyrsti gesturinn okkar var Emmi sem kom í gærkveldi og horfði á pókerinn með okkur.

EM er byrjað og það er magnað. :) Veit ég hef lítið að segja en ég ákvað að blogga af því að ég veit ekki hversu langt er þangað til ég kemst í netsamband. Aber ja!

Þar til næst
-Lilja Laufey

Posted at 10:50 pm by lugure
Make a comment  




Tuesday, June 03, 2008
Á laugardaginn fyrir rúmri viku...

...þá fór ég í bæinn og skemmti mér bara nokkuð vel, þrátt fyrir stutta viðdvöl. Daginn eftir gat ég ómögulega fundið lyklana mína og á mánudeginum var það orðið ljóst; lyklarnir voru ekki í húsinu. Mér fannst þetta að sjálfsögðu voða sorglegt og datt í hug að ég hefði kannski misst þá í gólfið á þessum eina stað sem fór á niðri í bæ. Ég minntist þess þó ekki að hafa farið neitt í töskuna mína en ákvað þó að hringja og athuga hvort þeir hefðu fundist. En svo var víst ekki.

Alla vikuna þurfti ég að hafa íbúðina ólæsta meðan ég var í vinnunni, því að Andri fór alltaf á undan mér og ekki tímdi hann að lána mér sína, því þá yrði hann læstur úti. Það var svo á fimmtudagskvöldið sem ég fór út með ruslið og hvað haldið þið að ég hafi séð í hurðinni á ruslageymslunni? Jebb, það voru lyklarnir mínir. Búnir að hanga þarna í hurðinni í fimm daga og vegna þess að þeir voru ekki merktir (því að sjálfsögðu má ekki merkja lykla) þá gat enginn skilað þeim til mín. En ég var fegin að fá þá til baka. :)

Þar til næst
-Lilja Laufey

Posted at 05:36 pm by lugure
Comments (2)  




Next Page